Á morgun, sumardaginn fyrsta, mun unglingaráð Ægis halda hið árlega sumarkaffi í Ráðhúsinu. Foreldrar yngri flokka hafa bakað af kappi og munu borð svigna undan kræsingum. Foreldraráð hefur skipulagt uppákomuna og verður skemmtileg dagskrá í boði fyrir kaffigesti, söngur, dans og tónlist.
Nú er um að gera að fagna sumri með dásamlegum kaffiveitingum og styrkja um leið starf yngri flokka en ágóði sölunnar fer í kostnað við mót sumarsins.
Húsið opnar 14:30 og dagskráin 15:00. Gjald fyrir fullorðna er 1.300, 7 – 12 ára borga
600 og frítt er fyrir 6 ára og yngri.