5. flokkur karla lék gegn Skallagrím á Þorlákshafnarvelli í dag í rjómablíðu.
A liðið hóf leik og var leikur þeirra var jafn og spennandi. Bæði lið fengu fín færi en mörkin létu á sér standa. Gestirnir náðu að skora rétt fyrir leikslok en við það hresstust okkar menn og sóttu að krafti fram á síðustu mínútu en náðu ekki að nýta færin. Niðurstaðan því 0:1 fyrir gestina.
B liðið lék seinni leikinn og var þar einnig um að ræða jafnan og spennandi leik. Gestirnir skoruðu fyrsta markið en Sindri náði að jafna stuttu síðar. Í byrjun síðari hálfleiks náðu bæði lið að bæta við mörkum og var Bo Jo þar að verki hjá Ægi. Ragnar náði síðan að koma okkar strákum yfir en gestirnir bættu við tveimur mörkum undir lokin og höfðu sigur 3:4.
Næstu leikir 5. flokks eru miðvikudaginn 18. maí gegn Val á útivelli.
Nú er hægt að skoða nokkrar myndir úr leikjum dagsins á myndavefnum.
Image URL: /aegirfc/upload/images/5. karla gegn Skallagrím 10. maí/DSC_0055_thumb.JPG