Guðmundur Friðriksson hefur verið valinn í úrtak hjá KSÍ fyrir unglingalandslið. Þetta eru skemmtilegar fréttar og mjög ánægjulegar fyrir Guðmund sem og uppeldis félag hans Ægi. Guðmundur hefur verið einstaklega duglegur við æfingar og er svo sannarlega með innistæðu fyrir þessu vali. Guðmundur er öðrum ungum og efnilegum iðkendum okkar hjá Ægi góð fyrirmynd. Það að ná þessum áfanga er mikill viðurkenning því það eru margir tilkallaðir en fáir útvaldir. Það verður gaman að fylgjast með Guðmundi í framhaldinu og ég veit það að hann á eftir að bæta enn við sig og halda sínu striki. Til hamingju Guðmundur. Æfingin skapar….
Mbkv.
Sveinbjörn
Image URL: /aegirfc/upload/images/gummifriðriks/IMG_2454_thumb.JPG