Meistaraflokkur lék gegn Hamri á Grýluvelli í kvöld. Leikurinn var ansi mikilvægur fyrir bæði lið til að losa sig frá botninum auk þess sem heiðurinn var að veði í þessum grannaslag.
Í fyrri hálfleik voru Ægismenn þéttir á vellinum og gáðu heimamönnum lítið pláss. Menn voru að verjast vel og héldu boltanum þokkalega. Nokkrar góðar sóknur litu dagsins ljós en það var í einni slíkri sem Arilíus sendi laglega sendingu á Matejic sem kláraði færi sitt vel og staðan 0:1 eftir 29 mínútur. Hamar fékk lítið af færum utan nokkur skot fyrir utan teyg sem ekki rötuðu á ramman. Rétt fyrir hálfleik meiddist Hugi og Arnar Freyr kom í markið, gott að eiga öflugan varamarkmann.
Í síðari hálfleik voru okkar menn ekki eins nálægt í dekkingum og Hamarsmenn gengu hægt og bítandi á lagið. Þeir áttu nokkrar góðar sóknur þó án þess að ógna marki okkar mikið. Lítið var um góðar sóknir hjá Ægi og náðu menn lítið að halda boltanum innan liðsins. En þegar leið á hálfleikinn komust strákarnir betur inní leikinn og heimamenn urðu óþreyjufullir. Nokkur spenna skapaðist í lokinn þegar Hamar fékk horn og voru komnir með alla leikmenn inní teyg og þar með talið markmanninn. Upp úr því fengum við síðan kjörið tækifæri sem ekki náðist að nýta þrátt fyrir að enginn væri í marki Hamars. En niðurstaðan varð 0:1 sigur okkar manna sem eru frábær úrslit.
Með sigrinum fórum við upp fyrir Reyni og erum nú í 9. sæti með 17 stig. Næsti leikur er einmitt gegn Reyni á þriðjudaginn hér á Þorlákshafnarvelli.