Grátlegt tap meistaraflokks gegn ÍR

8. júl 2014

| Garðar

Grátlegt tap meistaraflokks gegn ÍR

20140404_205811 (1)Meistaraflokkur mætti ÍR á Hertz vellinum í kvöld.  Aðeins eitt stig skildi liðin að fyrir leikinn og því sigur mjög mikilvægur fyrir bæði lið.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en fá færi litu dagsins ljós.  Heimamenn komust þó yfir snemma leiks þegar Jón Gísli Ström skoraði laglegt mark.

Í síðari hálfleik voru okkar menn sterkari.  Eftir laglega sókn jafnaði Matejic leikinn og aðeins 14 mínútur eftir.  Lítið var í gangi hjá heimamönnum en þá kom aftur til skjalann Jón Gísli Ström sem skoraði annað laglegt mark á 88. mínútu en það reyndist sigurmark leiksins.  Svekkjandi tap og í raun aðeins laglegar afgreiðslur Jóns Gísla sem skildi liðin að.

Næsti leikur Ægis er heimaleikur á föstudaginn gegn Aftureldingu og nú er um að gera að fjölmenna í stúkuna og styðja strákanan til sigurs.