Grátlegt tap gegn ÍR í kvöld

31. júl 2013

| Garðar

Grátlegt tap gegn ÍR í kvöld

Meistaraflokkur tók á móti ÍR í kvöld á Þorlákshafnarvelli.  Aðstæður voru góðar, völlurinn flottur og veðrið með besta móti.

Fyrri hálfleikur einkenndist af talsverðri baráttu og gáfu okkar menn gestunum ekkert eftir.  Fá færi litu dagsins ljós en bæði lið fengu nokkra hálf sénsa sem nýttust ekki.  Jafnræði var með liðunum og staðan þegar flautað var til hálfleiks 0:0.

Í síðari hálfleik var svipað uppá teningnum mikil barátta en lítið um færi.  En þegar leið á hálfleikinn sóttu gestirnir í sig veðrið á meðan okkar menn héldu boltanum illa.  Hugi átti mjög góðan leik í markinu, var öruggur og varði glæsilega í tvígang þegar gestirnir sköpuðu sér úrvals færi.  Það var því grátlegt þegar ÍR skoraði sigurmark leiksins örfáum mínútum fyrir leikslok.  Okkar menn reyndu hvað þeir gátu það sem eftir lifði leiks en náðu ekki að skapa sér afgerandi færi frekar en fyrr í leiknum.  Niðurstaðan því grátlegt 0:1 tap.

Byrjunarlið Ægis í kvöld.

Byrjunarlið Ægis í kvöld.