Meistaraflokkurinn vann góðan útisigur á Árborg síðastliðið fimmtudagskvöld. Lokatölur urðu 1:2 en það voru Predrag (12) og Arilíus (44) sem skoruðu mörk Ægis. Sigurinn var enþá sætari þar sem okkar menn voru einum færri megnið af síðari hálfleik.
Eftir þessa umferð er toppbaráttan ansi hörð. Berserkir eru á toppnum með 15 stig, Sindri í öðru með 14 stig og síðan koma Ægir og KFS jöfn með 13 stig. Næsti leikur Ægis er einmitt gegn KFS á miðvikudaginn kl. 18:00 á Þorlákshafnarvelli.