Meistaraflokkur karla lék gegn liði KV á föstudagskvöld og fór leikurinn fram á Þorlákshafnarvelli. Liði KV var fyrir mótið spáð sigri í riðlinum og miðað við gott gengi Ægis fyrir mót mátti búast við hörku leik.
Fyrri hálfleikur fór fjörlega af stað og sýndu bæði lið góð tilþrif. Eftir tvær snarpar og vel útfærðar sóknir uppskáru okkar menn mörk á 10. og 13. mínútu og voru það Albert og Guðni sem skoruðu. Eftir mörkin gáfu okkar menn aðeins eftir og gestirnir komust betur inní leikinn. Þeir náðu síðan að minnka muninn á 32. mínútu.
Seinni hálfleikur einkenndist af mikilli baráttu beggja liða og litu ansi mörg spjöld dagsins ljós, en þegar upp var staðið hafði Ægir fengið á sig 6 gul en KV 1. Ægir missti síðan Bigga af velli á 82. mínútu með rautt spjald. Gestirnir sóttu án afláts eftir það en vörn okkar manna hélt af öryggi og það var síðan Sæli sem innsilgdi sigur okkar manna á 90. mínútu og niðurstaðan 3:1 fyrir Ægi. Eftir þennan góða sigur eru sitja Ægismenn einnir á toppi A riðils með 6 stig.
Næsti leikur meistaraflokks er á laugardag gegn KFS og fer hann fram í Vestmannaeyjum.
Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/DSC_0115_thumb.JPG