Meistaraflokkur lék í gær gegn KFR á Selfossvelli. Ægismenn áttu góðan dag og lönduðu góðum 2:1 sigri.
Liðið lék undan sterkum vindi í fyrri hálfleik og hafði mikla yfirburði enda var staðan 2:0 í hálfleik. Í síðari hálfleik hélt liðið boltanum vel gegn vindinum og átti KFR lítinn möguleika þó þeir hafi minkað muninn undir lok leiksins.
Það voru Sverrir Þór Garðarsson og Milan Djurovic sem skoruðu mörk Ægis.
Það var gaman að sjá unda Ægisstráka spila í leiknum en Atli Rafn (98) lék allan leikinn og Eiður Smári (99) kom inná undir lok leiks.
