Það viðraði sannarlega vel til knattspyrnuiðkuna í gærkvöldi þegar KFR kom í heimsókn á Þorlákshafnarvöll. Fyrir leikinn höfðu gestirnir unnið báða síðna leiki en Ægimenn töpuðu sínum fyrsta leik gegn KFS í Vestmannaeyjum.
Okkar menn hófu leikinn af krafti og Sæli fékk dauða færi sem hann klikkað ekki á og kom okkar mönnum yfir á annar mínútu. Lang sterkasti leikmaður KFR, framherjinn Reynir Björgvinsson jafnaði síðan leikinn á 11. mín. Ægismenn voru heldur sterkari í fyrri hálfleik og Luc var svo sannarlega á skotskónum. Hann kom liðinu yfir á 15. mín. og setti síðan annað á 27. mín. Staðan í hálfleik var 3:1 og útlitið gott fyrir okkar menn.
Í síðari hálfleik var Ægisliðið alltaf líklegri liðið þó KFR fengju nokkur hálf færi. Það var því verðskuldað þegar Luc skoraði gott skallamark á 73. mín. eftir góðan undirbúning frá Aco. Leiknum lauk því með sigri okkar manna 4:1.
Dómari leiksins var duglegur að lyfta spjöldum en alls komu 11 gul spjöld leiknum, 6 á Ægi og 5 á KFR.
Allir leikmenn Ægis voru að spila vel en Lárus var mjög traustur á miðjunni, Michael og Aco áttu marga góða spretti og Sæli sýndi mjög góða baráttu. Einnig var Vincent mjög vinnusamur og á án vafa eftir að vera mikilvægur fyrir liðið.
Það var ánægjulegt að sjá hversu margir mættu á leikinn en opinberar áhorfendatölur voru 100 manns.
Næsti leikur liðsins er föstudaginn 3. júní gegn KV á útivelli.
Image URL: /upload/images/Mfl. karla 2011/lidsmynd_thumb.jpg