Meistaraflokkur vann í dag góðan sigur gegn Dalvík/Reyni í Lengjubikarnum. Ægir var betri aðilinn fyrstu 15. mínúturnar en gáfu aðeins eftir fram að hálfleik. Mateja kom liðinu yfir en Áki skoraði sjálfsmark og staðan því jöfn í hálfleik.
Í síðari hálfleik voru Ægismenn sterkari og uppskáru þrjú góð mörk, tvö frá Áka og eitt frá Aroni eftir góða stoðsendinu frá Jóni Reyni. Liðið endaði því með 9 stig og verður í öðru eða fyrsta sæti riðilsins en það kemur í ljós eftir leik Völsungs og Magna.