Strákarnir í meistaraflokki gerðu góða ferð til Njarðvíkur í kvöld. Þeir unnu sannfærandi 0:3 sigur og vippuðu sér þar með úr fallsæti upp í það sjöunda með 11 stig. Will var svo sannarlega á skotskónum í kvöld en hann skoraði öll mörk liðsins, eins er ánægjulegt að sjá liðið halda hreinu.
Næst halda strákarnir á Seyðisfjörð og leika gegn Huginn, föstudaginn 17. júlí.
