5. flokkur kvenna lék á föstudag gegn ÍR og fór leikurinn fram í Þorlákshöfn. Okkar stelpur byrjuðu af krafti, skoruðu tvö mörk fyrir leikhlé og hefðu hæglega getað bætt við fleirum. Í Seinni hálfleik var jafnræði með liðunum þó Ægir væri alltaf lýklegri til að skora. Að lokum skoruðu bæði lið tvö mörk í hálfleiknum og leikurinn endaði því 4:2 fyrir Ægi. Liðið á enn eftir að spila gegn BÍ en óvíst er hvenær sá leikur fer fram.
Hér til hliðar má sjá Önnu fara yfir leikskipulag með liðinu í hálfleik og síðan eru fleiri myndir frá leiknum hér fyrir neðan.
Image URL: /aegirfc/upload/images/5.kv. gegn ÍR/HPIM1347_thumb.JPG
Image URL: 5.kv. gegn ÍR