Góður sigur hjá 4. flokk kvenna – myndir

19. jún 2008

| umsjon

Góður sigur hjá 4. flokk kvenna – myndir

4. flokkur kvenna lék gegn Víði/Reyni á Þorlákshafnarvelli í gær.  Leikurinn átti að fara fram í dag en var flýtt að ósk gestanna.
Stelpurnar voru ekki alveg vaknaðar í upphafi leiks því gestirnir voru komnir í 0:1 eftir ca. 5. mín.  Eftir það jafnaðist leikurinn og liðin sóttu á báða bóga.  Ingibjörg náði síðan að jafna stuttu fyrir hálfleik og staðan 1:1 í leikhlé.  Síðari hálfleikur var síðan nokkuð jafn en undir lokin setti Eva Lind tvö mörk og góður sigur Ægisstúlkna staðreynd.
Næsti leikur hjá stelpunum er mánudaginn 23. júní gegn Skallagrím á útivelli.

Nokkrar góðar myndir frá leiknum í gær eru komnar á myndavefinn.


Image URL: /aegirfc/upload/images/4. kvenna gegn Víði/DSC_0270_thumb.JPG