4. flokkur kvenna lék geng liði Skallagríms á miðvikudaginn í síðustu viku. Leikurinn fór fram á Þorlákshafnarvelli. Það er skemmst frá að segja að stelpurnar höfðu mikla yfirburði í leiknum og unnu 8:1 eftir að staðan hafði verið 5:1 í hálfleik. Stúlkurnar voru allar að spila vel og áttu sigurinn svo sannarlega skilið. Það voru Eva (4), Margrét (2), Guðlaug og Aðalbjörg sem skoruðu mörk Ægis.
Image URL: /aegirfc/upload/images/4. flokkur kvenna/o2 4.fl.kvenna 2008_thumb.jpg