Góður sigur hjá 4. flokk kvenna

10. apr 2008

| umsjon

Góður sigur hjá 4. flokk kvenna

4. flokkur kvenna lék í gær gegn KFR og fór leikurinn fram hér í Þorlákshöfn.  Stúlkurnar byrjuðu ekki vel og var staðan 1:3 í hálfleik fyrir gestina og var það Margrét sem skoraði mark Ægis.  Okkar stúlkur voru ekki að spila vel og náðu ekki saman.  Í síðari hálfleik snérist taflið við.  Liðið spilaði miklu betri vörn og boltinn gekk á milli leikmanna.  Eva Lind skoraði 3 mörk og leiknum lauk með sigri Ægis 4:3.  Glæsilegt stelpur!!!!!!!!! 


Image URL: /aegirfc/upload/images/5. flokkur kvenna/PICT0123_thumb.JPG