Meistaraflokkur karla lék sinn síðasta leik á Íslandsmótinu í kvöld þegar Hvíti Riddarinn kom í heimsókn. Fyrir leikinn áttu okkar menn ekki möguleika á sæti í úrslitakeppninni og því að litlu að keppa. En þrátt fyrir það áttu strákarnir flottan leik og sýndu oft fín tilþrif.
Leiknum lauk með sigri Ægis 6:0 sem er sannarlega góður endir á tímabilinu. Mörk liðsins skoruðu Michael (3), Milan, Óskar og Arnar.
Image URL: /upload/images/Mfl. karla 2011/CIMG2268 (800×600)_thumb.jpg