Góður dagur hjá 5. flokki

10. mar 2013

| Garðar

Góður dagur hjá 5. flokki

A og B lið 5. flokks hófu leik í Faxaflóamótinu í dag.  Mótherjinn var Skallagrímur og fóru leikirnir fram í Hamarshöll.  A liðið spilaði fyrst en þeirra leikur var jafn og spennandi.  Strákarnir höfðu sigur 5:4 og voru heilt yfir sterkari aðilinn í leiknum.  B liðið lék seinni leikinn en hann var aldrei spennandi.  Okkar strákar höfðu mikla yfirburði og léku gestina oft grátt.  Lokatölurnar voru 11:1.

C og D lið 5. flokks leika síðan næstu helgi gegn FH og fara þeir leikir einnig fram í Hamarshöll.CIMG3097 CIMG3098 CIMG3099 CIMG3095 CIMG3096