Góður dagur hjá 5. flokk karla á miðvikudag

24. jún 2011

| umsjon

Góður dagur hjá 5. flokk karla á miðvikudag

Sameiginlegt lið Hamars/Ægis í 5. flokk karla lék gegn Reyni Sandgerði og Haukum á miðvikudag.  Strákarnir áttu sannarlega góðan dag.  A liðið vann 3:2, B liðið fór á kostum og kláraði sinn leik 7:1 (þessir leikir voru gegn Reyni), C liðið vann frábærann 4:3 sigur í baráttuleik og D liðið tapaði 1:3 en átti samt góðan leik.

Framundan hjá 5. flokk eru leikir gegn Bí/Bolungarvík á mánudag (langt ferðalag framundan hjá strákunum og leikir gegn Fram á þriðjudag.  Á miðvikudag hefst síðan N1-mótið á Akureyri en það stendur fram á laugardag.