Góður dagur hjá 4. og 5. flokk karla

9. ágú 2011

| umsjon

Góður dagur hjá 4. og 5. flokk karla

4. og 5. flokks lið Ægis fóru heldur betur á kostum í dag.  5. flokkur fór í Borgarnes og vann báða leiki sína.  A liðið sigraði 3:2 og B liðið fór á kostum og sigraði 12:2.
4. flokkur karla fékk Fram í heimsókn á Þorlákshafnarvöll og unnu góðan 1:0 sigur.  Þótt liðið hafi aðeins unnið með einu markið voru þeir talsvert betri aðilinn í leiknum og sigurinn því fyllilega verðskuldaður.