Stelpurnar í 6. flokki kvenna léki í úrslitakeppni Íslandsmótsins (Hnátumót KSÍ) í gær. Þangað komust þær eftir að hafa unnið sinn undanriðil fyrr í sumar.
Það er óhætt að segja að stelpurnar hafi staðið sig vel. Þær unnu KR (3:0) og Þrótt (4:0) í riðlakeppni en töpuðu fyrir Val (1:3), sem síðan urðu Íslandsmeistarar. Þær spiluðu því um þriðja sæti en töpuðu þar fyrir Fram (2:3) í miklum spennuleik.
Niðurstaðan því fjórða sæti í keppni A liða sem er frábær árangur hjá þessum flottu stelpum.