Góður æfingaleikur hjá Ægi á laugardag

18. apr 2011

| umsjon

Góður æfingaleikur hjá Ægi á laugardag

Meistaraflokkur karla lék æfingaleik gegn Stjörnunni á laugardag.  Það er óhætt að segja að úrslitin hafi verið góð því leiknum lauk með 1:1 jafntefli.  Mark Ægis skoraði Luc úr víti.
Þar sem um æfingaleik var að ræða fengu allir að spreyta sig auk þess sem tveir leikmenn voru til reynslu í leiknum.

Hópurinn var skipaður eftirtöldum leikmönnum (fæðingarár fylgir með).
Byrjunarlið: Hlynur(83), Trausti (89), Bjarni Már(87), Aco Pandurevic(82) á reynslu, Pálmi(88), Lárus(81), Ingimar(88), Eyþór Guðnason(75) á reynslu, Mike(83), Sæli(80) og Luc(86).
Bekkurinn: Ómar(96), Haukur(95), Dagur(94), Keli(94), Vignir(91), Matti(89), Gísli(87), Reynir(70).  Í liðið vantaði Milan og Jóhann.

Við minnum á að síðasti leikur liðsins í Lengjubikarnum er á fimmtudaginn gegn Ými á Selfoss velli og hefst kl. 14:00.