Meistaraflokkur karla vann mikilvægan 1:2 útisigur gegn Hvíta Riddaranum á fimmtudag. Það voru Sæli og Eyþór sem skoruðu mark Ægis. Með sigrinum er liðið komið með 10 stig, aðeins 4 stigum frá toppliði Léttis og 3 stigum frá liðunum í öðru sæti. Næsti leikur liðsins er gegn KFS á föstudagskvöldið og hefst hann kl. 19:00 á þorlákshafnarvelli.
4. flokkur karla átti einnig leik á fimmtudag. Þá vann liðið góðan sigur á toppliði Vals 3:2. Það voru Atli (með 2) og Halldór sem skoruðu mörk Ægis.
Góðir sigrar hjá meistaraflokk karla og 4. flokk karla á fimmtudag
4. júl 2011
| umsjon