Það má með sanni segja að það hafi gengið vel hjá Ægi á knattspyrnuvellinum í gær.
2. flokkur karla tók á móti ÍR á Þorlákshafnarvelli og unnu góðan 2:0 sigur en Þorkell Þráinsson skoraði seinna mark Ægis/Selfoss. Strákarnir eru núna í 4. sæti aðeins 6 stigum frá toppnum.
B lið 3. flokks karla lék einnig gegn ÍR en á Grýluvelli. Liðið hafði mikla yfirburði og lauk leiknum með 10:0 sigri.
