Góðir leikir hjá 5. flokk karla í dag

12. ágú 2008

| umsjon

Góðir leikir hjá 5. flokk karla í dag

5. flokkur karla lék gegn Fjölni í dag og fóru leikirnir fram í Grafarvogi.
A – liðið hóf leik en byrjuðu leikin ekki sem skildi.  Fjölnir skoruðu þrjú mörk snemma leiknum og voru komnir með örugga forustu.  Ægir sótti síðan í sig veðrið og voru að spila mjög vel.  Þeir náðu þó bara að setja eitt mark og 3:1 tap því staðreynd.
B – liðið spilaði síðari leikinn og áttu mjög góðan leik.  Þeir komust yfir og fengu nokkur góð færi til að bæta við mörkum en inn vildi boltinn ekki.  Það voru hins vegar heimamenn sem náðu að jafna leikinn og lauk honum því 1:1.

Næstu leikir 5. flokks er gegn Reyni Sandgerði og fara þeir fram á fimmtudag (ekki föstudag) á Þorlákshafnarvelli.