Sameiginlegt lið Ægis/Hamars hélt í Garðinn í dag og lék þar gegn Reyni/Víði. A-liðið byrjaði og hafði sigur 2:4 eftir að hafa verið 1:0 undir í hálfleik en strekkings vindur hafði talsverð áhrif á leikinn. B-liðið átti mjög góðan dag og vann stórsigur 1:12 og hafði mikla yfirburði í leiknum. Þetta var því mjög góður dagur hjá 5. flokk.
Góð ferð 5. flokks karla í Garðinn
6. jún 2012
| umsjon