Góð ferð 5. flokks í Sandgerði

15. maí 2013

| Garðar

Góð ferð 5. flokks í Sandgerði

A og B lið 5. flokks karla í sameiginlegu liði Ægis/Hamars lék í gær gegn Reyni/Víði og fóru leikirnir fram í Sandgerði.

A liðið hóf leik og vann góðan 1:3 sigur eftir að staðan var 1:1 í hálfleik.  B liðið vann einnig góðan sigur í miklum markaleik en hann endaði 5:8.

Þetta voru síðustu leikir 5. flokks í Faxaflóamótinu en Íslandsmótið hefst í lok maí.

Strákarnir sem léku í Sandgerði í gær.

Strákarnir sem léku í Sandgerði í gær.