Góð ferð 4. flokks karla á Snæfellsnes

30. jún 2008

| umsjon

Góð ferð 4. flokks karla á Snæfellsnes

4. flokkur karla lék gegn liði Snæfellsness síðastliðin fimmtudag og fór leikurinn fram á Grundarfirði.  Eftir langt ferðalag voru strákarnir greinilega ekki til í slaginn því heimamenn voru yfir í hálfleik 2:0.  En okkar strákar hresstust heldur betur í síðari hálfleik og áður en leiknum lauk voru þeir búnir að setja átta mörk.  Leiknum lauk með sigri Ægis 3:8.
Markaskorarar Ægis voru Tómas (2), Svavar (3), Guðmundur, Friðrik og Þorlákur.

Næsti leikur strákanna er fimmtudaginn 3. júlí kl. 17:00 á Þorlákshafnarvelli.  Næsti leikur 7 manna liðsins er á morgun þriðjudag kl. 17:30 á Þorlákshafnarvelli.


Image URL: /aegirfc/upload/images/4. flokkur karla/DSC00078_thumb.JPG