Meistaraflokkur karla hóf leik í 2. deild í dag er liðið sótti Hött heim. Strákarnir byrjuðu tímabilið vel og lönduðu 1:2 sigri. Mörk Ægis skoruðu Haukur Már (38. mín.) og Darco Matejic (49. mín.) en heimamenn minnkuðu muninn í uppbótartíma.
Alli þjálfari var ánægður með spilamennsku okkar manna. Liðið var þétt, vel skipulagt og sóknirnar hraðar. Hattarmenn náðu lítið að ógna marki Ægis.
Næsti leikur Ægis er bikarleikur gegn 1. deildar liði Grindavíkur en hann fer fram þriðjudaginn 14. maí.