Meistaraflokkur karla lék KV á föstudagskvöldið. Okkar menn lékur gegn sterkum vindi í fyrr hálfleik en voru samt heldur sterkari aðilinn. Það voru heimamenn sem skoruðu fyrsta markið en það kom á 30. mín. úr föstu leikatriði. Eyþór jafnar síðan rétt fyrir hálfleik.
Í síðari hálfleik áttu okkar menn leikinn en þrátt fyrir fjöld dauðafæra og víti ná strákarnir ekki að skora mark. Í staðin skora KV aftur úr föstu leikatriði 10 mín. fyrir leikslok og stela sigrinum. Grátleg niðurstaða miðað við gang leiksins.
Næsti leikur liðsins er gegn KH á heimavelli næstkomandi föstudag.
Glötuð stig hjá meistaraflokk í vesturbænum
5. jún 2011
| umsjon