Meistaraflokkur karla tekur á móti KV á Þorlákshafnarvelli í dag. Þetta er fyrsti heimaleikur liðsins í deildinni þetta tímabilið. KV er spáð góðu gegni í deildinni og unnu ma. sigur á Ægi í Lengjubikarnum.
Okkar menn hafa hins vegar verið að spila vel í upphafi tímabils og eru með 3 stig eftir góðan útisigur gegn Hetti í fyrstu umferð. Það verður því gaman að sjá liðin kljást í dag en leikurinn hefst kl. 14:00.
