Futsal mót 3. flokkur karla

24. jan 2010

| umsjon

Futsal mót 3. flokkur karla

Futsalmótið hjá 3. flokki karla fór fram í gær laugardag. Liðin sem spiluðu í mótinu voru frá Fylki, Gróttu, Val, KFR og sameiginlegt lið heimamanna. Það fór svo að liðin voru að vinna hvort annað, ekkert lið náði fullu húsi stiga. Baráttan í leikjunum var gríðarleg og ekkert gefið, þjálfarar liðanna lifðu sig svo sannarlega inn í leikinn og hvöttu sína leikmenn óspart. Leikar fóru svo að þrjú lið urðu jöfn að stigum, Fylkir, Grótta og Ægir/Hamar með 7 stig. Markatala Fylkismanna reyndist best, síðan Gróttu og loks heimamanna.

Mbkv.
Sveinbjörn


Image URL: /aegirfc/upload/images/3.flokkur karla 2010/IMG_2349_thumb.JPG