Fréttatilkynning frá Ægi

16. mar 2016

| Garðar

Fréttatilkynning frá Ægi

Í síðustu viku, 7. mars 2016, var haldinn aukaaðalfundur Knattspyrnufélagsins Ægis  þar sem skipuriti félagins var breytt og stofnað var nýtt „Barna- og unglingaráð Ægis“.  Aðalbreytingin liggur í að þetta nýja ráð mun halda utan um alla starfsemi  yngri flokka og annast meðal annars fjárhagslegan rekstur o.s.frv.  Áhugi er að auka aðkomu foreldra að starfsemi yngri flokka Ægis og gefa þeim fleiri tækifæri til að hafa bein áhrif á starfið og stjórnun félagsins.

Aðrar breytingar eru að framvegins munu svo tveir fulltrúar úr Barna- og unglingaráði og aðrir tveir úr Meistaraflokksráði Ægis sitja í aðalstjórn félagsins.

Stjórn og ráð Ægis skipa eftirtaldir:

Barna- og unglingaráð

Sigríður Lára Ásbergsdóttir formaður

Ottó Rafn Halldórsson ritari

Anna Berglind Júlísdóttir meðstj.

Halldór Kristinn Viðarsson meðstj.

Eevakaisa Jónasson gjaldkeri/bókari

Meistaraflokksráð

Sveinn Jónsson formaður

Þór Emilsson meðstj.

Júlíus Kristjánsson meðstj.

Markús Haraldsson meðstj.

Þráinn Jónsson meðstj.

Aðalstjórn

Guðbjartur Örn Einarsson formaður/gjaldkeri

Sigríður Lára Ásbergsdóttir meðstj.

Ottó Rafn Halldórsson / Anna Berglind Júlísdóttir ritari

Sveinn Jónsson meðstj.

Þór Emilsson meðstj.

Við lítum björtum augum á framtíðina með tilkomu þessara breytinga og vonum að félagið verði öflugara fyrir vikið á allan hátt í framtíðinni.

Bestu kveðjur,

Aðalstjórn

Knattspyrnufélagið Ægir