Héraðsmót HSK í 6. og 7. flokki karla og kvenna
Héraðsmótunum í 6. og 7. flokki karla og kvenna í knattspyrnu, sem halda átti utanhúss um helgina, hefur verið frestað til 29. og 30. nóvember nk. Mótin verða haldin innanhúss og fara fram í Íþróttahúsinu Iðu á Selfossi. 6. flokkur fer fram á laugardeginum og 7. flokkur á sunnudeginum. Mótin hefjast kl. 11.00 báða dagana.