Framkvæmd Landsleikja gekk vel…

21. júl 2009

| umsjon

Framkvæmd Landsleikja gekk vel…

Stelpurnar í landsliðum Íslands og Færeyja fengu frábært veður bæði í U17 og U19 ára leikjunum sem fóru fram á Þorlákshafnarvelli. U17 á laugardag þar sem Ísland sigraði örugglega 7 -0 og seinni leikurinn U19 sem fram fór í gær mánudag fór Ísland með sigur af hólmi 3 – 1. Aðstandendur liðanna voru mjög ánægðir um allan þann aðbúnað sem liðin nutu hér á Þorlákshafnarvelli. Heimamenn geta verið stoltir af þeirri umgjörð sem hér er í boði fyrir knattspyrnuleiki.


Image URL: /aegirfc/upload/images/Lógó/sitelogo_thumb.gif