Frábær sigur meistaraflokks í gær

16. maí 2015

| Garðar

Frábær sigur meistaraflokks í gær

Meistaraflokkur mætti KV í gærkvöldi á gervigrasvelli KR.  Þetta var annar leikur liðsins á Íslandsmótinu en strákarnir töpuðu fyrir Huginn í fyrstu umferð og menn því þyrstir fyrstu stigin.

KV skoraði fyrsta mark leiksins á 18. mínútu en Uchenna jafnaði á 40. mínútu og staðan jöfn í hálfleik.  Í síðari hálfleik skoraði Kristján Hermann Þorkellsson tvívegis, á 68. og 83. mínútu, og tryggði Ægismönnum fyrstu stigin þetta sumarið.

Ægir mætir KV aftur á mánudaginn í bikarkeppni KSÍ en sigur í þeim leik kemur liðinu í 32 liða úrslit keppninnar.

Alli fer yfir málin í hálfleik.

Alli fer yfir málin í hálfleik.