Meistaraflokkur tók á móti Reyni Sandgerði í kvöld. Fyrir leikinn höfðu okkar menn unnið tvo leiki í röð og því á góðri siglingu.
Ægir lék undan sterkum norðanvind í fyrri hálfleik. Jafnræði var með liðunum en hvorugt náði þeirra náði að skapa sér mikið af færum.
Í síðari hálfleik byrjaði Ægir af krafti og náði nokkrum góðum sóknum. Í einni slíkri kom Ágúst Freyr okkar mönnum yfir. Eftir það voru gestirnir meira með boltann en okkar strákar voru þéttir til baka. Eftir því sem leið á leiknn þyngdust sóknir Reynismanna en vörn Ægis og Matthew í markinu stóðu vaktina. Niðurstaðan góður 1:0 sigur.
Með sigrinum stökk Ægir upp í fjórða sæti með 16 stig, aðeins 1 stigi frá öðru sæti. Næsti leikur liðsins er útileikur gegn ÍR sem fer fram næstkomandi þriðjudag kl. 20:00.
