Frábær sigur meistaraflokks á Hornafirði

14. júl 2012

| Garðar

Frábær sigur meistaraflokks á Hornafirði

Meistaraflokkur karla lék gegn Sindra á Hornafirði í dag.  Óhætt er að segja að leikurinn hafi verið ansi mikilvægur í toppbaráttunni en tap hefði komið okkur í  ansi erfiða stöðu.

Fyrri hálfleikur einkenndist af baráttu og var má segja að jafnræði hafi verið með liðunum.  Okkar menn voru þó þéttir til baka og Sindri náði ekki að skapa sér nein veruleg færi.

Heimamenn byrjuðu síðari hálfleik af krafti og voru ansi líklegir upp við mark Ægis en eftir ca. 15 mín. jafnaðist leikurinn og þegar leið á náðu strákarnir okkar undirtökunum.  Það var síðan á 88. mín sem við áttum flotta sókn sem endaði með því að Predrag skoraði sigurmark leiksin.

Með þessum sigri erum við með 16 stig í 4. sæti með jafn mörg stig og Léttir og KFS en einu minna en Sindri.  Berserkir sitja síðan á toppnum með 19. stig en þeir eru einmitt næsti mótherji okkar en leikurinn við þá fer fram næstkomandi fimmtudag á Þorlákshafnarvelli.