Frábær sigur meistaraflokks á Grenivík

8. sep 2012

| Garðar

Frábær sigur meistaraflokks á Grenivík

Meistaraflokkur karla sótti Magna heim á Grenivík í dag.  Þetta var fyrri leikur liðana í undanúrslitum 3. deildar.

Heimamenn hófu leikinn af krafti, sóttu á mörgum mönnum og komu varnarmönnum Ægis ansi oft í vandræði.  Þeir uppskáru mark á 5. mín. og útlitið ekki bjart.  Milan, sem átti frábæran leik, jafnaði leikinn á 13. mín. með góðu langskoti.  Er leið á fyrri hálfleik unnu  Ægismenn sig betur inní  leikinn, héldu boltanum betur og stöðvuðu sóknir Magna.

Í síðari hálfleik voru okkar menn heldur sterkari aðilinn og uppskáru mark frá Matta á 64. mín.  Magnús Helgi gulltryggði síðan sigur Ægis með marki í blálokin.

Þessi sigur er svo sannarlega gott veganesti fyrir síðari leikinn sem fer fram á Þorlákshafnarvelli næstkomandi miðvikudag kl. 17:15.  Nú fjölmennum við öll á völlinn og styðjum strákana til sigurs og sætis í 2. deild.