Frábær sigur hjá 4. flokk karla

24. ágú 2007

| umsjon

Frábær sigur hjá 4. flokk karla

4. flokkur karla lék í gær gegn Álftanesi og fór leikurinn fram í Hveragerði.  Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu sterkt lið Álftnesinga 4:2.  Álftanes er nýbúið að gera jafntefli við topplið KFR og sigurinn því góður.
Að sögn Guðjóns þjálfara voru allir strákarnir að spila vel og fullyrðir hann að ekki hafi verið spilaður betri fótbolti á Grýluvelli í mörg ár.  Það voru Máni, Ingþór (2) og Eggert sem skoruðu mörk Hamars/Ægis.
4. flokkur leikur sinn síðasta leik á Íslandsmótinu á laugardag gegn Snæfellsnesi og fer leikurinn fram á Stykkishólmi.


Image URL: /aegirfc/upload/images/4. flokkur karla/PICT0386_thumb.JPG