Frábær sigur Ægis gegn Sindra

8. ágú 2015

| Garðar

Frábær sigur Ægis gegn Sindra

Meistaraflokkur landaði þremur stigum gegn Sindra í frábærum leik á Þorlákshafnarvelli í dag.

Framan af leik var útlitið ekki gott hjá okkar mönnum en staðan var 0:3 fyrir gestina eftir 28. mínútur.  Will minnkaði svo muninn fyrir hálfleik.

Á tíu mínútum jöfnuðu Ægismenn síðan  metin með mörkum frá Ramon og Will.  Það var síðan Milan sem skorðaði sigurmarkið þegar hann lyfti boltanum yfir markmann Sindra af löngu færi.

Ægir mætir næst KF á Ólafsfjarðarvelli laugardaginn 15. ágúst.mfl á ferðinni