Meistaraflokkur karla gerði sitt fjórða jafnteflið í röð gegn KFS frá Vestmannaeyjum á föstudag. Gestirnir voru heldur ákveðnari í fyrri hálfleik og voru 0:2 yfir í hálfleik en það var enginn annar en Steingrímur Jóhannesson sem gerði bæði mörkin. Í seinni hálfleik voru okkar menn sterkari og náðu að jafna leikinn rétt fyrir leikslok en það var nýr leikmaður Ægis Sigurður Steinsson sem gerði bæði mörkin.
Ægir er sem stendur í fjórða sæti með 16 stig og einu sæti ofar eru KFS með 17. Í öðru sæti eru síðna Hamarsmenn með 22 stig og Grótta er á toppnum með 25.
Næsti leikur Ægis er stórleikur annað kvöld gegn Hamri og fer hann framm á Grýluvelli í Hveragerði. Leikurinn hefst kl. 20:00 og hvetjum við alla til að fjölmenna og styðja okkar menn.
Áfram Ægir
Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/PICT0392_thumb.JPG