5. og 6. flokkur karla fóru í óvissuferð síðastliðinn fimmtudag. Farið var frá íþróttamiðstöðinni með Ægisrútunni og var aðeins þjálfarinn sem vissi hvert förinni var heitið. Áfangastaðurinn var Keiluhöllin í Öskjuhlíð en þar fóru strákarnir í keilu og skemmtu sér konunglega. Eftir keiluna var svo pizza og gos fyrir alla.
Ferðin var mjög skemmtileg og voru strákarnir til fyrirmyndar. Sumir voru að spila keilu í fyrsta skipti en það mátti oft sjá glæsileg tilþrif á keilubrautinni.
Image URL: /upload/images/Ýmislegt/DSC-0000018_thumb.jpg