Fjör í foreldrafótbolta 7. flokks

7. sep 2012

| Garðar

Fjör í foreldrafótbolta 7. flokks

Það var mikið fjör síðastliðinn þriðjudag þegar foreldrar og iðkendur 7. flokks komu saman á gervigrasinu og kepptu í spennandi fótboltaleikjum.  Við byrjuðum að vísu í hressilegum stórfiskaleik en síðan tók alvaran við og snilldar tilþrif voru sýnd á knattspyrnuvellinum.  Allir stóðu sig gríðarlega vel en að lokum höfðu lið krakkana sigur.