Fjöldi leikja fór fram síðustu helgi hjá yngri flokkum Ægis.
Á laugardag lék 4. flokkur karla A og B lið gegn Breiðablik á Selfossi. Blikarnir reyndust of sterkir en A-liðið tapaði 3:4 og B-liðið 1:8. 5. flokkur karla C og D lið léku gegn FH í Hamarshöll. Báðir leikir voru jafnir og spennandi en C-liðið tapaði 4:5 og D-liðið 1:2.
Á sunnudag lék 3. flokkur kvenna gegn FH á Selfossvelli stelpurnar töpuðu 0:1. A og B lið 3. flokks karla léku einnig á Selfossvelli en gegn Haukum. Strákarnir áttu góðan dag en A-liðið vann 2:1 og B-liðið 5:2.
