Fjöldi leikja á gervigrasinu á morgun

29. sep 2007

| umsjon

Fjöldi leikja á gervigrasinu á morgun

Á morgun verða spiluð héraðsmót hjá 6. og 7. flokki hér í Þorlákshöfn.  Leikið verður á gervigrasinu á tveimur völlum.  Það er 7. flokkur sem byrjar en mótið hjá þeim hefst kl. 10:00.  Stelpurnar í 6. flokk eru næstar og byrja kl. 12:00.  Strákarnir í 6. flokk eru síðan síðastir en þeirra mót hefst kl. 13:30.
Við hvetjum alla til að koma og sjá stjörnur framtíðarinnar sýna snilli sína.