Enn jafn æfingaleikur hjá meistaraflokk

8. des 2012

| Garðar

Enn jafn æfingaleikur hjá meistaraflokk

Meistaraflokkur karla lék æfingaleik gegn Njarðvík á fimmtudagskvöldið.  Leiknum lauk með 4:3 sigri heimamanna en spilað var í Reykjaneshöll.

Sem fyrr áttu Ægismenn góða spretti en fengu á sig mörk af ódýrari gerðinni.  Þess má geta að 5 strákar úr 3. flokk léku með liðinu, þeir Arnar Logi, Jón Jökull, Eyþór Dagur, Axel og Pétur.  Strákarnir stóðu sig allir með prýði.