4. flokkur karla lék gegn Sindra á föstudaginn. Fór leikurinn fram á Hornafirði en strákarnir fóru á fimmtudag og gistu í góður yfirlæti.
Það er óhætt að segja að Hamar/Ægir hafi haft talsverða yfirburði í leiknum en samkvæmt Ágeiri þjálfara voru þeir að leika sérstaklega vel og spil liðsins með því besta sem þeir hafa sýnt. Leiknum lauk með sigri Hamars/Ægis 0:10.
Markaskorarar leiksins voru Tómas (3), Pálmi, Svavar, Máni, Guðmundur, Eggert, Fannar og eitt markið var sjálfsmark Sindra.
Þar sem nú eru frí á Íslandsmótunum fram yfir verslunarmannahelgi er næsti leikur þeirra á mótinu ekki fyrr en föstudaginn 8. ágúst. Strákarnir eru núna langeftir á mótinu með 18 stig og markatöluna 53:9.
Image URL: /aegirfc/upload/images/4. flokkur karla/DSC00078_thumb.JPG