Dýrt tap hjá Ægismönnum í kvöld

11. jún 2012

| umsjon

Dýrt tap hjá Ægismönnum í kvöld

Meistaraflokkur tók á móti Létti á Þorlákshafnarvelli í kvöld.  Strákarnir fóru ágætlega af stað og uppskáru mark frá Magnúsi Helga strax á 6. mín.  Eftir það hresstust gestirnir héldu boltanum vel og fengu ansi mikinn frið til að spila boltanum á milli sín.  Ægismenn fengu þó hættulegri færi en náðu ekki að nýta þau.  En á 45. mín jafna Léttismenn og staðan því 1:1 í hálfleik.
Í síðari hálfleik voru okkar menn heldur sterkari, héldu boltanum og náðu að skapa sér nokkur hálf færi.  En varnarleikur alls liðsins var ekki nógu þéttur og menn of langt frá sínum mönnum.  Gestirnir færðu sér þetta í nyt og komust í 1:3 með mörkum á 60. og 78. mín.  Áfram sóttu okkar menn, fækkuðu í vörn og bættu í sóknina en ekki komu mörkin og Léttismenn komu sér í þægilega 1:4 stöðu á 89. mín.  Í vonlausri stöðu bitu okkar menn frá sér þegar Ingi Rafn skoraði á 93. mín og síðan úr víti á 95. mín.  En niðurstaðan grátlegt 3:4 tap.

Sigur hefði komið sér sérlega vel í kvöld þar sem bæði Árborg og Berserkir töðuðu sínum leikjum.  Einnig virðast KFS og Sindri ætla að stinga af á toppnum.  En það kemur leikur eftir þennan leik og nóg eftir af mótinu og mörg stig í pottinum.  Næsti leikur liðsins er gegn Ísbirninum og fer hann fram mánudaginn 18. júní í Kórnum.