Dramantík hjá meistaraflokk í Vestmannaeyjum

12. ágú 2008

| umsjon

Dramantík hjá meistaraflokk í Vestmannaeyjum

Meistaraflokkur karla lék í kvöld gegn KFS og fór leikurinn fram í Vestmannaeyjum.  Ægismenn voru ekki að leika vel í fyrri hálfleik og að sögn Sveinbjörns þjálfara var alltof mikið af sendingarfeilum innan liðsins.  Heimamenn náðu að skora tvívegis og staðan því 2:0 þegar síðari hálfleikur hófst.  KFS komust í 3:0 fljótlega eftir hálfleik og útlítið því ekki bjart hjá okkar mönnum en strákarnir brögguðust þegar leið á leikinn og með mörkum frá Danislav og Sæla var staðan heldur betri.  Markið hjá Sæla var einkar fallegt, stöngin inn uppvið markvinkilinn.  En lukkan var ekki yfir liðinu í kvöld því Jón og Albert fengu báðir að líta rauða spjaldið og við því 9 á móti 11.  Liðið sótti samt af miklum krafti og með mikilli baráttu náðum við að jafna leikinn þegar Danislav skoraði sitt annað mark í uppbótartíma.

Næsti leikur Ægis er gegn toppliði Berserkja og fer hann fram á Víkingsvelli næstkomandi laugardag og hefst kl. 14:00.


Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/DSC_0115_thumb.JPG